tækifærisleyfi
Ingólfsstræti 2A
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 496
20. júní, 2014
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 13. júní 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. júní 2014 þar sem sótt er um leyfi til að byggja veislustofu með þaksvölum við núverandi 3. hæð, koma fyrir útibekkjum og og gróðurbelti, framlengja lyftu og flóttaleið frá Bankastræti 7 á þaksvölum, Gamla Bíós, sbr. erindi BN046942, samþ. 20.5. 2014, á lóð nr. 2a við Ingólfsstræti. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. júní 2014.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 2.6. 2014. Stærðir stækkun brúttó: xx ferm., xx rúmm. Gjald kr. 9.500
Svar

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 16. júní 2014 er samþykkt að grenndarkynna umsóknina fyrir hagsmunaaðilum að Hverfisgötu 4, 6, og 10 og Bankastræti 3, 5, 7 og 7a.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101323 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023225