Kaffihús fl.1 - 0101
Hverfisgata 82
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 603
30. september, 2016
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. september 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. september 2016 þar sem sótt er um leyfi til að breyta hárgreiðslustofu í rými 01-0101 í kaffihús í flokki l, tegund e, í húsi nr. 82 við Hverfisgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. september 2016.
Samþykki eiganda fylgir erindi. Gjald kr. 10.100
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. september 2016 samþykkt.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101503 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022397