(fsp) breyting á notkun
Víðimelur 35
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 521
19. desember, 2014
Synjað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 12. desember 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. desember 2014 þar sem spurt er hvort breyta megi matshluta 03, sem er skráð sem iðnaðar-/atvinnuhúsnæði og bílskúr, í þrjár íbúðir, allar með sér inngangi, við fjölbýlishús á lóð nr. 35 við Víðimel. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. desember 2014.
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 15. desember 2014.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106255 → skrá.is
Hnitnúmer: 10014557