breyting á deiliskipulagi
Rauðagerði 74
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 469
22. nóvember, 2013
Samþykkt
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 8. nóvember 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. nóvember 2013 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja u.þ.b. sex fermetra anddyrisviðbyggingu að norðurhlið, u.þ.b. sjö fermetra sólstofu að suðurhlið og tvo kvisti á norður- og suðurþekju einbýlishúss á lóðinni nr. 74 við Rauðagerði. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. nóvember 2013.
Svar

Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 14. nóvember 2013.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108357 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025207