Breytingar utanhúss
Sóleyjargata 29
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 467
8. nóvember, 2013
Synjað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 1. nóvember 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. okt. 2013 þar sem sótt er um leyfi til þess að skipta einbýlishúsi í fjórar íbúðir, byggja bílgeymslu og stigahús að austurhlið, bæta við svölum á fyrstu og annarri hæð og byggja viðbyggingu á þakhæð hússins nr. 29 við Sóleyjargötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. nóvember 2013.
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags.7.nóvember 2013.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102750 → skrá.is
Hnitnúmer: 10019344