Hækka þak - kvistir
Njálsgata 12
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 500
18. júlí, 2014
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 11. júlí 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 8. júlí 2014. Sótt er um leyfi til að hækka þak og byggja tvo kvisti á fjölbýlishús á lóð nr. 12 við Njálsgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. júní 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. júní 2014.
Umsókninni var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt nýjum uppdráttum, dags. 11. apríl 2014, breytt 1. júlí 2014.

Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 12. apríl 2014.
Stækkun: 44,5 ferm., 52 rúmm.
Gjald kr. 9.500
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Njálsgötu 10a, 9-11, 12a, 13a og 13b og Bjarnarstíg 4 og 6.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101863 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023367