breyting á deiliskipulagi
Suðurhlíð 9, Klettaskóli
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 734
28. júní, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 11. apríl 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Suðurhlíða vegna lóðar nr. 9 við Suðurhlíð, Klettaskóla. Í breytingunni felst að gerður er byggingarreitur fyrir fjórar færanlegar kennslustofur austan við skólann ásamt tengibyggingu, samkvæmt uppdr. arkitektastofunnar OG ehf. dags. 11. apríl 2019, byggingarmagn eykst sem því nemur. Tillagan var auglýst frá 13. maí 2019 til og með 24. júní 2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar