breyting á deiliskipulagi
Hallgrímstorg 3 / Hnitbjörg
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 607
28. október, 2016
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. október 2016 var lagt fram bréf Skipulagsstofnunar, dags. 30. september 2016, þar sem ekki er gerð athugasemd við birtingu auglýsingu um samþykkt á breytingu á deiliskipulagi Skólavörðuholts vegna lóðarinnar nr. 3 við Hallgrímstorg í B-deild Stjórnartíðinda þegar stofnuninni hafa borist lagfærð gögn þar sem teknir hafa verið út fyrri skilmálar fyrir deiliskipulag Skólavörðuholts með síðari breytingum þ.m.t. yfirlýsing um að eldra deiliskipulag falli úr gildi. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt lagfærðum uppdr. dags. 11. maí 2016, breyttur dags. 27. október 2016.
Svar

Lagt fram.

Landnúmer: 102542 → skrá.is
Hnitnúmer: 10005633