breyting á deiliskipulagi
Nauthólsvegur 50
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 376
16. desember, 2011
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi Icelandair dags. 23. ágúst 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar vegna lóðarinnar nr. 50 við Nauthólveg. Í breytingunni felst að þriggja hæða skrifstofuhluti er hækkaður í fjórar hæðir, einnig að komið verði fyrir lyftuhúsum allt að tveimur metrum upp úr þaki, samkvæmt uppdrætti T.ark dags. 12. september 2011. Einnig er lagt fram samþykki meðlóðarhafa ódags. og samþykki Isavia dags. 28. júní 2011. Tillagan var auglýst frá 28. október til og með 9. desember 2011. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.