breyting á deiliskipulagi
Nauthólsvegur 50
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 534
10. apríl, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Halldórs Eiríkssonar f.h. Iceeigna ehf. dags. 15. janúar 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 50 við Nauthólsveg. Í breytingunni felst að gerður er byggingarreitur fyrir hjóla- og sorpgeymslu, sorpskýli og gasgeymslu norðan við húsið, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Arkitektar ehf. dags. 9. desember 2014. Einnig er lagt fram samþykki meðlóðarhafa dags. 15. janúar 2015. Tillagan var auglýst frá 16. febrúar til og með 30. mars 2015. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar