breyting á deiliskipulagi
Nauthólsvegur 50
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 522
9. janúar, 2015
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 12. desember 2014 var lögð fram fyrirspurn Halldórs Eiríkssonar FAÍ f.h. Iceeignir ehf. dags. 9. desember 2014 um að gera byggingarreit fyrir hjóla- og sorpgeymslu, sorpskýli fyrir sorpgám og gasgeymslu norðan við húsið á lóðinni nr. 50 við Nauthólsveg, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Arkitektar ehf. dags. 9. desember 2014. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Samþykki meðlóðarhafa þarf að fylgja með umsókn.