Viðbygging
Faxaskjól 12
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 10 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 458
30. ágúst, 2013
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. júní 21013 þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu úr timbri við norðurhlið, geymsluskúra í norðvesturhorni lóðar, breyta innra skipulagi og breyta í einbýlishús tvíbýlishúsi á lóð nr. 12 við Faxaskjól. Erindi var grenndarkynnt frá 14. júní til og með 12. júlí 2013. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Jón Ólafur Ísberg dags. 25. júní 2013, Oddný Yngvadóttir dags. 2. júlí 2013 og Inga Rós Ingólfsdóttir og Hörður Áskelsson dags. 10. júlí 2013. Málinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra 1. ágúst 2013.
Einnig er lagður fram tölvupóstur Ingu Rósar Ingólfsdóttur og Harðar Áskelssonar dags. 28. ágúst 2013 þar sem athugasemd er dregin til baka.
Stækkun húss: 32 ferm., xx rúmm. Geymsluskúrar: 6,7 ferm., xx rúmm. Gjald kr. 9.000
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106196 → skrá.is
Hnitnúmer: 10009693