breyting á deiliskipulagi
Ægisíða 62
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 836
10. september, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. ágúst 2021 var lögð fram umsókn Alternance slf. dags. 1. júlí 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Ægisíðu frá Hofsvallagötu að Lynghaga vegna lóðarinnar nr. 62 við Ægisíðu. Í breytingunni felst breyting á byggingarreit lóðarinnar sem felst í að byggingarreit er skipt niður þannig að aðalreitur verður í kringum núverandi byggingu og minni reitur fyrir garðskála, samkvæmt uppdr. Alternance slf. dags. 28. maí 2021. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Ægissíðu 60, 64 og Tómasarhaga 35, 37, 39 og 41.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7.6 . gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1472/2020.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106496 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016978