breyting á deiliskipulagi
Ægisíða 62
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 863
1. apríl, 2022
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Alternance slf. dags. 1. júlí 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Ægisíðu frá Hofsvallagötu að Lynghaga vegna lóðarinnar nr. 62 við Ægisíðu. Í breytingunni felst breyting á byggingarreit lóðarinnar sem felst í að byggingarreit er skipt niður þannig að aðalreitur verður í kringum núverandi byggingu og minni reitur fyrir garðskála, samkvæmt uppdr. Alternance slf. dags. 28. maí 2021. Tillagan var grenndarkynnt frá 26. október 2021 til og með 23. nóvember 2021. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Kristjana Stella Blöndal og Ólafur Rastrick dags. 23. nóvember 2021 og Ágúst Borgþór Sverrisson og Kristbjörg Erla Kjartansdóttir. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. febrúar 2022 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Umsækjandi hafi samband við embættið.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106496 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016978