breyting á deiliskipulagi
Reitur 1.131, Nýlendureitur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 446
7. júní, 2013
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni hagsmunaaðilakynningu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs varðandi breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits, reitur 1.13. Í breytingunni felst breyting á afmörkun o.fl., samkvæmt drögum að tillögu umhverfis- og skipulagssviðs dags. apríl 2013. Tillagan var hagsmunaaðilakynnt til og með 30. maí 2013. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir og ábendingar: Arnheiður Anna dags. 14. maí 2013, Birgir Þ. Jóhannsson dags. 27. og 28. maí 2013, Guðlaug Hildur Birgisdóttir dags. 27. maí 2013, Ylfa Ýr Steinsdóttir f.h. húsfélagsins að Nýlendugötu 24B dags. 29. maí 2013, Slippurinn fasteignafélag dags. 29. maí 2013, Sæmundur Benediktsson og Margrét Jónsdóttir dags. 30. maí 2013, Seltjarnarnesbær dags. 30. maí 2013, Grétar Guðmundsson dags. 30. maí 2013, Bragi Þorgrímur Ólafsson dags. 31. maí 2013 og Skúli Magnússon dags. 1. júní 2013.
Svar

Athugasemdir kynntar.
Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs.