Vetrargarður og baðhús
Brekkugerði 10
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 657
10. nóvember, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. september 2017 þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu á austurhlið þar sem í verður vetrargarður og baðhús í einbýlishúsi á lóð nr. 10 við Brekkugerði. Erindi var grenndarkynnt frá 5. október 2017 til og með 2. nóvember 2017. Engar athugasemdir bárust.
Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. júlí 2015.
Útskrift úr gerðarbók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. september 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. ágúst 2017. Stækkun: 84,4 ferm., 238,7 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107755 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007819