Breyta í einbýlishús
Hringbraut 92
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 10 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 447
14. júní, 2013
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. apríl 2013 þar sem sótt er um leyfi til að skrá sem eina íbúð, rífa stiga við suðurhlið og byggja nýjan ásamt nýrri útihurð við austurhlið íbúðarhússins á lóðinni nr. 92 við Hringbraut. Erindi var grenndarkynnt frá 10. maí til og með 10. júní. Engar athugasemdir bárust.
Umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 26. apríl 2013 fylgir erindinu.
Gjald kr. 9.000
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100775 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020664