Hækkun og þaki - innr. herb. í risi
Barmahlíð 43
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 785
21. ágúst, 2020
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. ágúst 2020 þar sem sótt er um leyfi til að stækka svalir á fyrstu og annarri hæð, setja á þær handrið, koma fyrir tveimur þakgluggum á suðurhlið, tveimur á norðurhlið og einum á austurhlið, koma fyrir dyrum úr stofu kjallaraíbúðar út í garð á suðurhlið, sambærilegar við svaladyr á hæðum fyrir ofan, yfirborð garðsins er lækkað fyrir framan dyrnar auk þess sem gerð er grein fyrir áður gerðum breytingum á innra skipulagi íbúða, í hús á lóð nr. 43 við Barmahlíð.
Gjald kr. 11.200
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

105 Reykjavík
Landnúmer: 107134 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006799