Svalir
Rauðalækur 14
Síðast Synjað á fundi fyrir 10 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 442
10. maí, 2013
Synjað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 26. apríl 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. apríl 2013 þar sem sótt er um leyfi til að setja upp svalir úr galvaniseruðu stáli á suðausturhlið fyrstu, annarrar og þriðju hæðar hússins á lóðinni nr. 14 við Rauðalæk. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Tölvubréf hönnuðar dags. 17. apríl 2013 fylgir erindinu.
Umsögn skipulagsfulltrúa (vegna fyrirspurnar) dags. 11. mars 2013 fylgir erindinu. Yfirlýsing burðarvirkishönnuðar (á teikn.) og ný skráningartafla fylgja erindinu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. apríl 2013. Gjald kr. 9.000.
Svar

Neikvætt, með vísan til fyrri umsagnar dags. 11. mars 2013.

105 Reykjavík
Landnúmer: 104006 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025220