(fsp) - Viðbygging
Elliðavatnsblettur 3
Síðast Synjað á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 520
12. desember, 2014
Synjað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 7. nóvember 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. nóvember 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu norðan við sumarhús á Elliðavatnsblett 3. Einnig er lagt fram bréf Orkuveitu Reykjavíkur dags. 2. desember 2014. Erindi var vísað til umsagnar Heilbrigðiseftirlitsins Reykjavíkur og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 5. desember 2014. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. desember 2014.
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 5. desember 2014.