(fsp) breyting á deiliskipulagi
Hverfisgata 112 og 114
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 615
6. janúar, 2017
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. desember 2016 var lögð fram fyrirspurn Arkitekta Laugavegi 164 ehf., mótt. 15. desember 2016, um að breyta notkun lóðanna nr. 112 og 114 við Hverfisgötu og nr. 27-29 við Snorrabraut í hótel, stækka byggingarreiti og auka byggingarmagn lóðanna nr. 112 og 114 við Hverfisgötu, sameina lóðir á reitnum eða breyta lóðarmörkum og rífa eldri hús og byggja ný í þeirra stað. Einnig er lögð fram greinargerð Silju Traustadóttur arkitekts frá Glámu-Kím, dags. 14. desember 2016. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.

105 Reykjavík
Landnúmer: 102977 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022430