(fsp) kvistur
Grettisgata 83
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 752
22. nóvember, 2019
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. október 2019 var lögð fram fyrirspurn Noland Arkitekta ehf. dags. 11. október 2019 ásamt greinargerð dags. 11. október 2019 um að setja kvist með svölum á húsið á lóð nr. 81 við Grettisgötu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. nóvember 2019.
Svar

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 22. nóvember 2019, eru ekki gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101650 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011660