Hækka bílskúr
Njörvasund 10
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 718
1. mars, 2019
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. nóvember 2018 þar sem sótt er um leyfi til að hækka og byggja mænisþak á bílskúr og til að byggja verönd með skjólveggjum og heitum potti með öryggisloki sem verður sérnotaflötur íbúðar 0101 á lóð nr. 10 við Njörvasund. Erindi var grenndarkynnt frá 24. janúar 2019 til og með 21. febrúar 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Jens Fylkisson og Haukur Jensson dags. 5. febrúar 2019.
Stækkun 22,5 rúmm., flatarmál óbreytt. Samþykki meðeiganda dags. 12.05.2015 liggur fyrir. Gjald kr. 11.000
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

104 Reykjavík
Landnúmer: 105027 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023494