Garðskáli
Breiðagerði 7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 503
8. ágúst, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 27. júní 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. júní 2014 þar sem sótt er um leyfi til að byggja nýjan kvist og stækka annan á vesturhlið, byggja tvo nýja kvisti á austurhlið og klæða og einangra að utan með aluzinkuðu bárujárni hús og bílskúr á lóð nr. 7 við Breiðagerði. Erindi var sent í grenndarkynningu sem stóð frá 2. júli til 30. júlí 2014. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: 5 ferm., 26,6 rúmm. Gjald kr. 9.500
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107929 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007748