Endurnýjun á BN044991
Sörlaskjól 78
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 713
25. janúar, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. október 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja kvist á norðurhlið, svalir á suðurhlið 1. hæðar, verönd og hurð út í garð úr kjallara og til að byggja hjólaskýli við norðurhlið bílskúrs við parhús á lóð nr. 78 við Sörlaskjól. Erindi var grenndarkynnt frá 21. desember 2018 til og með 21. janúar 2019. Engar athugasemdir bárust.
Sams konar erindi, BN044991, var grenndarkynnt árið 2013.
Kvistur: 3,2 rúmm. Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 24. maí 2017. Hjólageymsla: 6 ferm., 13,9 rúmm. Stækkun: 6 ferm., 17,1 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106134 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022874