Endurnýjun á BN044991
Sörlaskjól 78
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 432
22. febrúar, 2013
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. janúar 2012 þar sem sótt er um leyfi til að byggja kvist á norðurhlið, svalir á suðurhlið 1. hæðar, verönd og hurð út í garð úr kjallara og til að byggja hjólaskýli við norðurhlið bílskúrs við parhús á lóð nr. 78 við Sörlaskjól. Einnig er lagður fram tölvupóstur Einars G. Ólafssonar og Söru H. Franks þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við breytingar. Erindi var grenndarkynnt frá 18. janúar til og með 18. febrúar 2013. Engar athugasemdir bárust.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 12. október 2012 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 10. október 2012 og samþykki meðeigenda dags. 15. desember 2012.
Kvistur: xx rúmm.
Hjólageymsla xx ferm., xx rúmm.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 8.500 + xx
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106134 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022874