(fsp) - Hjólageymsla, garðgeymsla og endurvinnsla sorp.
Bauganes 37A
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 413
28. september, 2012
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 21. september 2012 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. september 2012 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að byggja skýli sem er ca. 22 ferm. að stærð sem nýta á sem hjólageymslu, geymslu fyrir garðverkfæri og endurvinnslu sorps og á að vera staðsett fyrir innan bílastæði út við götu á lóð nr. 37A við Bauganes. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Yfirlýsing nágranna og teikningar á A4 fylgir.
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.

102 Reykjavík
Landnúmer: 106835 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006940