breyting á deiliskipulagi
Laugarnesvegur 56
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 606
21. október, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Búseta húsnæðissamvinnufélags, mótt. 16. ágúst 2016, varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Teigar - norðan Sundlaugavegar vegna lóðarinnar nr. 56 við Laugarnesveg. Í breytingunni felst að heimilað verður að hafa þaksvalir/þakverönd innan byggingarreits, samkvæmt tillögu Búseta húsnæðissamvinnufélags, ódags. Tillagan var grenndarkynnt frá 19. september til og með 17. október 2016. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar