Steyptir pallar
Laufásvegur 70
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 562
13. nóvember, 2015
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð er fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, dags. 9. september 2015 að breytingu á deiliskipulagi reits 1.197.2-3, Smáragötureits, vegna Laufásvegs 70. Í breytingunni felst að breyta byggingarreit vegna tveggja steinsteyptra palla. Við breytinguna fellur eldri byggingarreitur niður. Tillagan var grenndarkynnt frá 24. september til og með 22. október 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Stefán E. Matthíasson og Ásdís Ólöf Gestsdóttir, dags. 13. október 2015 og Ingibjörg Þorsteinsdóttir og Hans Jakob Beck, dags. 19. október 2015. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á fundi skipulagsfulltrúa 30. október 2015 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102723 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016574