Svalir 1. & 2. hæð
Leifsgata 22
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 568
8. janúar, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. október 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir og gera nýjar dyr út á þær á 1. og 2. hæð á suðvesturhlið fjölbýlishúss á lóð nr. 22 við Leifsgötu. Erindi var grenndarkynnt frá 2. desember til og með 30. desember 215. Engar athugasemdir bárust. Einnig er lagt fram bréf Guðjóns St. Guðjónssonar dags. 15. desember 2015 þar sem ekki er gerð athugasemd við erindið.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda í Leifsgötu 18-22 dags. í september 2015. Einnig útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. október 2015 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. október 2015. Gjald kr. 9.823
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102602 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018375