breyting á deiliskipulagi
Hringbraut 116/Sólvallagata 77 - Steindórsreitur
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 747
18. október, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Plúsarkitekta ehf. dags 27. júní 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Byko reitar á lóðinni nr. 77 við Sólvallagötu og nr. 116 við Hringbraut. Breytingin felst í hækkun hámarksfjölda íbúða úr 70 íbúðum í 84, inn- og útkeyrsla í bílakjallara heimiluð frá Hringbraut en engin útkeyrsla við Sólvallagötu, svalir megi ná út fyrir lóðarmörk byggingu sem stendur við Hringbraut samkvæmt greinagerð Plúsarkitekta ehf. dags 27. júní 2019. Einnig lagður fram deiliskipulagsuppdr. Plúsarkitekta ehf. dags 27. júní 2019. Ennfremur lagðar fram skýringamyndir og skuggavarp, dags. 27.júní 2019., breytt 3. júlí 2019 ásamt greinargerð, Hljóðsvistarskýrsla EFLU dags. 17.apríl 2019 og minnisblað EFLU dags. 7.ágsúst 2019 um áhrif á samgöngur. Einnig er lagður fram tölvupóstur Ástu Olgu Magnúsdóttur formann Íbúasamtaka Vesturbæjar og fulltrúi í skólaráði Vesturbæjarskóla dags. 16. október 2019 þar sem óskað er eftir framlengingu á athugasemdarfresti.
Svar

Samþykkt að framlengja athugasemdarfrest til 31. október nk.