breyting á deiliskipulagi
Hlemmur, reitur 1.240, Umferðarskipulag
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 728
17. maí, 2019
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. maí 2019 var lagður fram tölvupóstur skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 8. maí 2019 þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa á hugmyndum leigutaka Mathallar við Hlemm dags. 3. janúar 2019 um mögulega stækkun Hlemms. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. maí 2019.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa samþykkt, dags. 17. maí 2019.