breyting á deiliskipulagi
Hlemmur, reitur 1.240, Umferðarskipulag
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 609
11. nóvember, 2016
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. nóvember 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. nóvember 2016 þar sem sótt er um leyfi til breytinga innanhúss fyrir Hlemm matarmarkað í strætóbiðstöð á lóð nr. 107 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. nóvember 2016.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. mars 2016 fylgir erindi BN050623, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. mars 2016. Einnig greinargerð Mannvits frá 26.7. 2016, hljóðvistarskýrsla Eflu dags. 27.7. 2016, brunahönnun Eflu dags. 26.7. 2016, sem og gátlisti, bréf arkitekts dags. 25.10. 2016 og skema yfir fyrirtæki, tímasetning, áhöld, tæki og hráefni. Gjald kr. 10.100
Svar

Jákvætt er tekið í við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. nóvember 2016.