Reyndarteikningar
Lynghagi 17
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 12 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 386
8. mars, 2012
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. mars 2012 þar sem sótt er um samþykkt á reyndarteikningu þar sem gerð er grein fyrir stækkun og breyttu innra skipulagi bílskúrs, og sólstofu á 1. hæð á austurgafli fjölbýlishúss á lóð nr. 17 við Lynghaga.
Stækkun bílskúrs: 6,5 ferm., 16,9 rúmm. Stækkun sólstofu 8,2 ferm., 20,5 rúmm.
Bréf frá hönnuði dags. 28. febrúar 2012 fylgir.
Gjald kr. 8.500 + 3.179
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða reyndarteikningu fyrir hagsmunaaðilum að Lynghaga 15 ásamt Ægisíðu 46 og 48.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106618 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020071