Reyndarteikningar
Lynghagi 17
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 12 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 392
27. apríl, 2012
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. mars 2012 þar sem sótt er um samþykkt á reyndarteikningu þar sem gerð er grein fyrir stækkun og breyttu innra skipulagi bílskúrs, og sólstofu á 1. hæð á austurgafli fjölbýlishúss á lóð nr. 17 við Lynghaga. Erindi var grenndarkynnt frá 15. mars til og með 19. apríl 2012. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun bílskúrs: 6,5 ferm., 16,9 rúmm. Stækkun sólstofu 8,2 ferm., 20,5 rúmm.
Bréf frá hönnuði dags. 28. febrúar 2012 fylgir.
Gjald kr. 8.500 + 3.179
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106618 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020071