Endurnýjun/sameining byggingarleyfa. Áður gerðar framkvæmdir
Fischersund 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 710
4. janúar, 2019
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. október 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. október 2018 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á innra fyrirkomulagi á jarðhæð ásamt leyfi til að byggja nýjar svalir, breyta gluggum og gera gististað í flokki III - tegund c, minna gistiheimili fyrir 10 gesti, í húsi á lóð nr. 3 við Fischersund. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. janúar 2019.
Gjald kr. 11.000
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. janúar 2019 samþykkt.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100629 → skrá.is
Hnitnúmer: 10009802