breyting á deiliskipulagi
Fiskislóð 43
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 668
9. febrúar, 2018
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Plúsarkitekta ehf. f.h. F43 ehf. mótt. 3. janúar 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi Örfiriseyjar vegna lóðar nr. 43 við Fiskislóð. Í breytingunni felst að stækka byggingarreit um 2,2 metra til suðausturs og auka nýtingarhlutfall með millilofti úr 0,6 í 0,67, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Plúsarkitekta ehf. dags. 13. desember 2017.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Fiskislóð 23-25, 27, 41, 45, 47 og 49- 51.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6.gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.

101 Reykjavík
Landnúmer: 209699 → skrá.is
Hnitnúmer: 10093610