(fsp) - Stoðveggur, færa heitan pott
Haukdælabraut 66
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 617
19. janúar, 2017
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. janúar 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. janúar 2017 þar sem spurt er um hvort reisa megi steyptan, stallaðan stoðvegg með fallvörnum á lóðarmörkum að borgarlandi, færa heitan pott að honum og byggja 25-40 m2 steypt skyggni yfir pottinn, 120 cm yfir nærliggjandi landi, með gróðurþekju að ofan og gustlokun á hliðum, við hús á lóð nr. 66 við Haukdælabraut. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. janúar 2017.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. janúar 2017, samþykkt með þeim skilyrðum og leiðbeiningum sem fram koma í umsögn.

113 Reykjavík
Landnúmer: 214809 → skrá.is
Hnitnúmer: 10101690