hjólageymsla og sólskáli
Bræðraborgarstígur 23A
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 12 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 372
11. nóvember, 2011
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. ágúst 2011 þar sem sótt er um leyfi til að byggja hjólageymslu og sólskála úr timbri og gleri með bárujárnsþaki á steyptum undirstöðum með hellulögðu gólfi við einbýlishúsið á lóð nr. 23A við Bræðraborgarstíg. Erindi var grenndarkynnt frá 6. október til og með 3. nóvember 2011. Engar athugasemdir bárust.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 19. ágúst 2011 fylgir erindinu.
Stærðir: 18 ferm., 43 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 8.000 + 3.440
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

Landnúmer: 100634 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007984