Breyting á innra fyrirkomulagi þakhæðar sem var hækkuð var 2015 án útgáfu byggingaleyfis.
Mávahlíð 20
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 710
4. janúar, 2019
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. desember 2018 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á þakhæð, kvistum og þaksvölum, einnig er sótt um að breyta ósamþykktri íbúð í risi í samþykkta íbúð í húsi á lóð nr. 20 við Mávahlíð.
Samþykki meðeigenda í húsi nr. 18 ódagsett. Greinagerð frá umsækjendum dags. 11. desember 2018. Stækkun er: 7,7 ferm. 38,1 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Drápuhlíð 17, 19 og 21 og Mávahlíð 14, 15, 16, 17, 18, 19, 21, 22 og 24.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016..