(fsp) stækkun húss o.fl.
Tunguvegur 24
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 349
13. maí, 2011
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. maí 2011 þar sem spurt er h.f. lóðarhafa lóðar nr. 24 við Tunguveg hvort Reykjavíkurborg heimili að lóðarspildu samsíða Langagerði verði bætt við lóð nr. 24 við Tunguveg. Spildan er 3.04 m á breidd og 78.2 m2 að flatarmáli og hafi hún verið í umhirðu lóðarhafa Tunguvegar 24 frá árinu 1969. Málinu fylgir tölvubréf fyrirspyrjanda dags. 6. maí 2011, afrit mæliblaða nr. 1.831.1, og 1.831.2 ásamt útprenti úr borgarvefsjá.
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið. Sækja þarf um lóðastækkun til embættis byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108520 → skrá.is
Hnitnúmer: 10024469