svalalokun
Ásvallagata 75
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 12 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 340
4. mars, 2011
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. mars 2011 þar sem spurt er hvort byggja megi svalalokun á efri hæð einbýlishúss á lóð nr. 75 við Ásvallagötu.
Svar

Með vísan til rammaskilmála af Jóhannstúni eru ekki gerðar athugasemdir við erindið. Vísað er til skilmála A og B þar sem sagt er að byggja megi yfir svalir, en taka verði tillit til stíls hússins. Grenndarkynna þarf byggingarleyfisumsókn berist hún.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100769 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007367