breyting á deiliskipulagi
Hlyngerði 3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 12 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 347
29. apríl, 2011
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra dags. 15. apríl 2011 var lagt fram erindi Bjarkar Sigurðardóttur dags. 14. apríl 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.806/807 vegna lóðarinnar nr. 3 við Hlyngerði. Í breytingunni felst að breyta byggingarreit og byggingarmagni ásamt fjölgun bílastæða úr tveimur í fjögur, samkvæmt uppdrætti GP arkitekta ehf. dags. 13. apríl 2011. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 15. apríl 2011. Erindinu var frestað og er nú lagt fram að nýju ásamt lagfærðum uppdrætti dags. 28. apríl 2011.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Hlyngerði 1 og 5 ásamt Furugerði 2, 4 og 6.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107797 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018883