breyting á deiliskipulagi
Nýlendugata 7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 694
17. ágúst, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, að breytingu á deiliskipulagi Norðurstígsreits vegna lóðarinnar Nýlendugötu 7. Í breytingunni felst að lóðarmörkum er breytt svo hægt sé að viðhalda gönguleið á milli lóða. Lóðarstærð Nýlendugötu 7 breytist lítillega. Fækkun bílastæða á borgarlandi um tvö stæði, eitt bílastæði færist inn á lóð Nýlendugötu 7, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Stiku dags. 25. júní 2018. Tillagan var grenndarkynnt frá 12. júlí 2018 til og með 9. ágúst 2018. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar

101 Reykjavík
Landnúmer: 100209 → skrá.is
Hnitnúmer: 10024223