Hesthús - mhl.03
Almannadalur 25-29
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 887
6. október, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. september 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. september 2022 þar sem sótt er um leyfi til að byggja hesthús á tveimur hæðum, steinsteypt burðarvirki með timburþaki, skipt upp í tvær notkunareiningar, notkunareining 03-0101 eru 8 stíur ásamt hlöðu á 1. hæð og íbúð á 2. hæð með útgengt út á svalir til suðurs, í notkunareiningu 03-0102 eru 11 stíur og hlaða á 1. hæð og íbúð á 2. hæð með útgengt út á svalir til norðurs á húsi nr. 29 á lóð nr. 25-29 við Almannadal. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. október 2022.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. október 2022 samþykkt.