Fjölbýlishús.
Sogavegur 73-75
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 486
4. apríl, 2014
Synjað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 7. mars 2014 var lögð fram fyrirspurn Hjallastefnunnar ehf. dags. 6. mars 2014 um að reka leik- og grunnskóla í húsinu á lóðinni nr. 75 við Sogaveg, þrengja götu, gera bílastæði á ská á núverandi gangstétt fyrir framan húsið ásamt hljóðmön eða hljóðvegg við Miklubraut. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra. Einnig lögð fram umsögn heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 1. apríl 2014 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. apríl 2014.
Svar

Neikvætt með vísan til umsagnar heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 1. apríl 2014 og umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 3. apríl 2014. Staðsetningin hentar ekki vegna mikillar hávaða- og loftmengunar frá bílaumferð m.v. óbreyttar aðstæður sbr. framangreindar umsagnir.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107823 → skrá.is
Hnitnúmer: 10067588