breyting á deiliskipulagi
Lautarvegur 18
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 341
11. mars, 2011
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi Önnu M. Hauksdóttur f.h. Ás styrktarfélags dags. 30. nóvember 2010 varðandi breytingu á deiliskipulagi neðan Sléttuvegar vegna lóðar Ás styrktarfélags. Í breytingunni felst að stytta byggingarreit að sunnan, stækka byggingarreit til vesturs og fjölgun íbúa og bílastæða, samkvæmt uppdrætti dags. 22. nóvember 2010. Erindið var auglýst frá 14. janúar 2011 til og með 25. febrúar 2011. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

103 Reykjavík
Landnúmer: 213571 → skrá.is
Hnitnúmer: 10097704