breyting á deiliskipulagi
Krosshamrar 5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 766
20. mars, 2020
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. febrúar 2020 var lögð fram umsókn Sæmundar Gunnarssonar dags. 23. janúar 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hamrahverfis vegna Krosshamra 5A, lóð nr. 5 við Krosshamra. Breytingin felst í því að byggingarreitur er stækkaður til vesturs um 4.0 x 3.7 m eða um 14.8 fm., samkvæmt uppdr. RÚM arkitekta dags. 12. febrúar 2020. Einnig eru lagðir fram skuggavarpsuppdr. RÚM arkitekta mótt. 15. mars 2020. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Krosshömrum 7, 7A, 9. og 9A.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.

112 Reykjavík
Landnúmer: 109074 → skrá.is
Hnitnúmer: 10014031