breyting á deiliskipulagi
Brekkubær 32-44
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 334
21. janúar, 2011
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi Arnars Inga Ingólfssonar móttekið 6. desember 2010 varðandi breytingu á deiliskipulagi Árbær- Selás raðhús. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit fyrir einnar hæðar viðbyggingu til suðurs á lóðinni nr. 32-44 við Brekkubæ, samkvæmt uppdrætti dags. 1. desember 2010. Erindið var grenndarkynnt frá 22. desember 2010 til og með 20. janúar 2011. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir. Magnús Halldórsson og Krísin Ólafsdóttir Melbæ 41 dags. 4. janúar 2011.
Svar

Vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins.

110 Reykjavík
Landnúmer: 111272 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007802