deiliskipulag
Grundarstígsreitur
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 583
29. apríl, 2016
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, mótt. 26. apríl 2016, ásamt tillögu að deiliskipulagi Grundarstígsreitar sem afmarkast af Grundarstíg, Spítalastíg, Þingholtsstræti og Skálholtsstíg. Í tillögunni eru settir fram almennir skilmálar fyrir gróna byggð á reitnum varðandi uppbyggingu kvista, smárra viðbygginga, svala og lítilla geymsla, í samræmi við byggingarreglugerð og byggingarstíl húsa á reitnum. Á lóð Grundarstígs 10 eru settir fram skilmálar um þegar byggða viðbyggingar fyrir menningartengda starfsemi með heimild fyrir veitingastað í flokki II tengda starfseminni. Settir eru fram sérskilmálar fyrir lóðina Þingholtsstræti 25 og er lóðinni skipt í 3 lóðir, Þingholtsstræti 25, 25A og 25B. Á Þingholtsstræti 25 er heimilt að innrétta allt að fjórar íbúðir í húsinu, stækka núverandi svalir, gera nýjar svalir á gafli. Á Þingholtsstræti 25A er skilgreind ný lóð undir almenningsgarð á borgarlandi. Á Þingholtsstræti 25B er skilgreind ný lóð fyrir nýbyggingu þar sem áður var líkhús. Heimilt er að byggja hús á tveimur hæðum með risi og kjallara fyrir íbúðarhús eða atvinnustarfsemi (þó ekki gististað). Heimilt að gera svalir á þeirri hlið sem snýr að Spítalastíg, samkvæmt uppdr. Glámu Kím ehf., dags. 22. mars 2016.
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs